25.08.10 |
Varðandi greiðsluseðla í september.
Ekki verða sendir út greiðsluseðlar vegna gjalddaga bílasamninga í erlendri mynt nú í september næstkomandi. Óski viðskiptavinir eftir því að greiða engu að síður, biðjum við þá um að hafa samband við okkur í síma 412 8900.
04.08.10 |
Bráðabirgðastjórn - óbreytt starfsemi
Með erindisbréfi Fjármálaeftirslitsins, dags. 13. júlí 2010 var bráðabirgðastjórn skipuð í Avant hf. Bráðabirgðastjórnina skipa:
Friðjón Örn Friðjónsson, hrl., formaður, Hulda R. Rúriksdóttir, hrl., og Ljósbrá Baldursdóttir, löggiltur endurskoðandi.
Að svo stöddu er starfsemi Avant óbreytt.
08.07.10 |
Varðandi greiðsluseðla í júlí og ágúst
Ekki verða sendir út greiðsluseðlar vegna gjalddaga bílasamninga í erlendri mynt nú í júlí og ágúst næstkomandi. Óski viðskiptavinir eftir því að greiða engu að síður, biðjum við þá um að hafa samband við okkur í síma 412 8900.
30.06.10 |
Avant fylgir tilmælum
Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa nú gefið út tilmæli til fjármálafyrirtækja um það hvernig þau skulu haga endurreikningi þeirra lánasamninga sem að mati viðkomandi lánafyrirtækis innihalda óskuldbindandi gengistryggingarákvæði sbr. dóma Hæstaréttar frá 16. júní um lögmæti lánsskuldbindinga í íslenskum krónum tengdra gengi erlendra gjaldmiðla, sbr. mál réttarins nr. 92/2010 og 153/2010. Niðurstaða Hæstaréttar var á þann veg að gengistrygging slíkra lána væri óskuldbindandi.
Avant mun fara eftir framangreindum tilmælum og hefst úrvinnsla samkvæmt þeim nú þegar. Ljóst er þó að niðurstöðu er ekki að vænta fyrir viðskiptavini alveg á næstu dögum þar sem undirbúningur og endurrreikningur mun taka einhvern tíma. Starfsfólk Avant mun flýta þeirri vinnu eins og kostur er og verða fréttir af framvindu mála fluttar hér á vef okkar um leið og málin skýrast.
Það skal skýrt tekið fram að viðskiptavinir tapa að sjálfsögðu ekki betri rétti sem þeir kunna að öðlast í framhaldinu en líklegt má teljast að frekari dómsúrskurði þurfi til svo fá megi fram endanlega niðurstöðu um tilhögun þessara mála.
30.06.10 |
Tilmæli frá Seðlabanka og Fjármálaeftirliti
Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands senda fjármálafyrirtækjum tilmæli vegna óskuldbindandi gengistryggingarákvæða og kynna þau í kjölfarið á sameiginlegum blaðamannafundi. Tilmælin eru svohljóðandi: